Á verkstæði Bílaglersins vinnur aðeins fagfólk með margra ára reynslu í bílrúðuísetningum og viðgerðum tengd bílrúðum og þannig tryggjum við að viðskiptavinurinn fái toppþjónustu og fari ánægður frá okkur.
Við notum aðeins hágæða efni og bílrúður frá viðurkendum framleiðanda.
Við bjóðum upp á ábyrgð á öllum bílrúðum hjá okkur.
Ef þig vantar öryggisgler í bátinn þinn þá sérsníðum við gler í allar gerðir báta. Komdu með bátinn til okkar eða komdu og gefðu okkur málin á stærð glersins sem þig vantar og við við skerum það til. Einnig eigum við til gler í gröfur, jarðýtur, veghefla og aðrar vinnuvélar.
Bílaglerið selur rúðuþurrkur í bíla og sér um að skipta um ef svo þarf. Ágætt að þurfa ekki að fara sérferð í aðra verslun til að nálgast rúðuþurrkur eftir framrúðuskiptin á bílnum þínum, heldur færðu þetta bara hjá okkur